Fotbolti.net
20.04.23 - 17:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arnar: Ekta mark sem ég hefði verið stoltur af hjá mínu liði

Auglýsing
Arnar: Ekta mark sem ég hefði verið stoltur af hjá mínu liði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

„Þetta er titill sem við höfum haft ansi lengi í okkar herbúðum, það er stefnan að vinna fjögur ár í röð," sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings eftir sigur á Magna í Mjólkurbikarnum.

„Magnamenn stóðu sig vel og skoruðu tvö helvíti öflug mörk. Þetta eru erfiðir leikir, lose-lose leikir, ef þú vinnur þá segja allir, já þú áttir að vinna, ef þú tapar þá færðu skammirnar í hattinn."

Arnar hrósaði mörkunum sem Magni skoraði, þá sérstaklega seinna markinu.

„Mér fannst þetta svona Víkings mark. Þeir sundurspiluðu okkur og fylltu boxið vel, ekta mark sem ég hefði verið stoltur af hjá mínu liði," sagði Arnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.