Alex Freyr Elísson var í byrjunarliðinu hjá Sigurði Ragnari Eyjólfssyni þegar NSÍ Runavík vann dramatískan sigur á Streymur í færeysku deildinni í kvöld.
Liðin mættust í bikarnum fyrir helgi þar sem NSÍ rúllaði yfir Streymur og vann 7-1.
Liðin mættust í bikarnum fyrir helgi þar sem NSÍ rúllaði yfir Streymur og vann 7-1.
NSÍ var með mikla yfirburði í kvöld en Streymur tókst að loka betur fyrir markið. Það var ekki fyrr en á áttundu mínútu í uppbótatíma sem NSÍ skoraði eina mark leiksins. 1-0 sigur NSÍ staðreynd.
Alex Freyr spilaði allan leikinn en Sigurður Ragnar er þjálfari liðsins. Liðið byrjar tímabilið frábærlega og er á toppnum með 16 stig eftir sex umferðir.



