Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Segja Inzaghi vera á förum í sumar
Mynd: Al Hilal
Mynd: EPA
Sádi-arabískir miðlar hafa það eftir ítalska miðlinum Tuttomercatoweb að Simone Inzaghi muni fara frá Al-Hilal eftir lokaumferð tímabilsins.

Samkvæmt fregnunum mun Inzaghi yfirgefa Al-Hilal aðeins einu ári eftir að hafa skrifað undir risasamning við félagið í fyrrasumar.

Inzaghi skrifaði undir tveggja ára samning sem var rúmlega 50 milljón evra virði og vann sádi-arabíska bikarinn á sínu fyrsta tímabili en datt úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Al-Hilal er í öðru sæti deildarinnar fyrir lokaumferð tímabilsins, tveimur stigum á eftir toppliði Al-Nassr.

Ástæðan fyrir yfirvofandi brottför Inzaghi eru breytingar í stjórn Al-Hilal og ósætti með leikmannakaup undir stjórn Ítalans. Stjórnendur eru ósáttir með leikmenn sem Inzaghi vildi fá til félagsins og stóðust svo ekki væntingar undir hans stjórn. Þar má helst nefna Darwin Núnez, Théo Hernández, Yusuf Akcicek og Mohamed Kader Meïté.

Þessir fjórir leikmenn kostuðu um 130 milljónir evra samanlagt en hafa alls ekki staðist væntingar.

Inzaghi er því líklegast á leið aftur til Evrópu í sumar en óljóst er hvort hann muni taka við félagi í ítalska boltanum eða reyna fyrir sér í nýrri deild. Inzaghi gerði góða hluti við stjórnvölinn hjá Lazio í fimm ár áður en hann tók við Inter og kom stórveldinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar tvisvar sinnum á fjórum árum.

Það kom fótboltaheiminum nokkuð á óvart þegar Inzaghi ákvað að yfirgefa Inter í fyrrasumar eftir að hafa rétt svo mistekist að vinna ítölsku deildina og 5-0 tap gegn PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

„Sannleikurinn er sá að þetta gerðist allt mjög hratt. Ég lét stjórnendur vita að ég vildi nýja áskorun. Þeir vildu halda mér áfram hjá félaginu en sýndu ákvörðun minni skilning og við erum ennþá vinir í dag. Ég hefði verið áfram hjá Inter ef við hefðum unnið Meistaradeildina," sagði Inzaghi á dögunum.

„Ég var búinn að hafna ýmsum tilboðum áður en ég ákvað að samþykkja tilboðið frá Al-Hilal."


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner