Fotbolti.net
20.06.26 - 20:20
Brynjar Ingi Erluson

2. deild: Dalvík/Reynir á miklu skriði - Haukar aftur á sigurbraut

Dalvík/Reynir er kominn með fjóra sigra í röð

Dalvík/Reynir er kominn með fjóra sigra í röð

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Dalvík/Reynir er heitasta liðið í 2. deild karla um þessar mundir en liðið vann fjórða leik sinn í röð og það með sex marka mun er það heimsótti KFG í dag.
Dalvíkingar byrjuðu Íslandsmótið á sigri en fóru svo í gegnum fjóra leiki án þessa að sigra.

Þeir eru að finna taktinn á ný, en liðið pakkaði KFG saman, 6-0, í Garðabænum í dag.

Staðan var orðin 2-0 eftir aðeins sex mínútur. Freyr Jónsson skoraði þegar leikurinn var aðeins einnar mínútu gamall áður en Atli Þór Sindrason tvöfaldaði nokkrum mínútum síðar.

Áki Sölvason og Sævar Þór Fylkisson bættu við tveimur á fimm mínútum áður en Atli gerði annað mark sitt undir lok fyrri hálfleiks.

Hektor Bergmann Garðarsonn rak síðan síðasta naglann í kistu KFG tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Dalvík/Reynir í miklu stuði og nú með 16 stig í 3. sæti deildarinnar en KFG í 7. sæti með 12 stig.

Haukar eru komnir aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað stigum í síðustu tveimur leikjum. Þeir unnu 1-0 sigur á Víkingi Ólafsvík, en það var Daði Snær Ingason sem gerði sigurmarkið á 38. mínútu leiksins.

Haukar eru á toppnum með 19 stig en Ólafsvíkingar í 9. sæti með aðeins 11 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Haukar 1 - 0 Víkingur Ó.
1-0 Daði Snær Ingason ('38 )

KFG 0 - 6 Dalvík/Reynir
0-1 Freyr Jónsson ('1 )
0-2 Atli Þór Sindrason ('6 )
0-3 Áki Sölvason ('34, víti )
0-4 Sævar Þór Fylkisson ('39 )
0-5 Atli Þór Sindrason ('42 )
0-6 Hektor Bergmann Garðarsson ('77, víti )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar11+1423
2Dalvík/Reynir11+620
3Selfoss11+219
4Kári11+917
5Kormákur/Hvöt11+1216
6Fjölnir11+415
7Víkingur Ó.11-714
8KFA11+513
9Hvíti riddarinn11-412
10KFG11-1612
11Magni11-1711
12Þróttur V.11-810
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.