Helga Margrét spáir í leiki morgundagsins á HM

Helga Margrét að störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður áfram í ótrúlegum ham.

Mynd: EPA

Helga Margrét að störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru fimm leikir framundan á næsta sólarhringinn á HM. Önnur umferð riðlakeppninnar er í fullum gangi.
Íþróttafréttakonan Helga Margrét Höskuldsdóttir, sem stýrir HM stofunni á RÚV, spáir í leikina sem framundan eru. Hún spáir áframhaldandi ævintýri hjá Curacao, telur að Spánverjar vakni og að óvænt úrslit verði í lokaleik morgundagsins.

Ekvador 3 - 1 Curacao (00:00)
Ekvador verður sterkari aðilinn í þessum leik en HM-ævintýri Curacao heldur áfram og þeir ná að skora annað mark.
Túnis 1 - 2 Japan (04:00
Verður mjög áhugavert að sjá hvernig Túnis mætir til leiks með nýja þjálfarann, Hervé Renard, held samt að Japan hafi þetta nú og vinni en segjum að þjálfarasjokkið skili Túnis fyrsta marki leiksins.
Spánn 4 - 0 Sádi-Arabía (16:00)
Spánverjar verða vaknaðir eftir jafnteflið gegn Grænhöfðaeyjum og klára þennan leik sómasamlega.
Belgía 2 - 1 Íran (19:00)
Þetta gæti orðið jafn og áhugaverður leikur en Belgar hafa þetta að lokum. Jafnvel að Lukaku setji annað.
Úrúgvæ 1 - 1 Grænhöfðaeyjar (22:00)
Ég hendi óvæntum úrslitum dagsins hér á þennan leik. Af hverju ættu Grænhöfðeyingar ekki að geta strítt Úrúgvæ eins og Spáni. Áhrifavaldurinn og samfélagsmiðlastjarnan Vozinha verður áfram í ótrúlegum ham, Grænhöfðaeyjar komast yfir í leiknum en Úrúgvæ jafnar.