Fotbolti.net
20.06.26 - 22:18
Brynjar Ingi Erluson

HM: Ótrúleg innkoma hjá Undav sem skaut Þjóðverjum áfram

HM: Ótrúleg innkoma hjá Undav sem skaut Þjóðverjum áfram
Canon

Mynd: EPA

Þýskaland 2 - 1 Fílabeinsströndin
0-1 Franck Kessie ('30 )
1-1 Deniz Undav ('68 )
2-1 Deniz Undav ('90 )
Þýskaland vann 2-1 endurkomusigur á Fílabeinsströndinni í annarri umferð E-riðils HM á BMO-leikvanginum í Toronto í Kanada í kvöld. Varamaðurinn Deniz Undav átti aðra stórkostlega innkomu inn í liðið hjá Þjóðverjum.

Fílabeinsströndin hélt ágætlega í boltann snemma leiks og ætluðu ekki að gefa neitt eftir, en það var hins vegar Kai Havertz sem átti fyrsta alvöru færi er hann skallaði fyrirgjöf í átt að marki sem Fofana varði.

Jamal Musiala átti næst fínasta skot sem fór rétt framhjá markinu áður en þeir komu loks boltanum í netið er Aleksandar Pavlovic stangaði boltanum í netið.

Markið var tekið af vegna brots á Fofana, markverði Fílabeinsstrandarinnar. Harður dómur, en líklega réttur.

Rétt eftir vatnspásuna komust Fílabeinsstrendingar óvænt í forystu er Yan Diomande fékk boltann vinstra, megin keyrði að endamörkum og kom honum fyrir markið. Nathaniel Brown bjargaði á línu áður en boltinn datt á fyrirliðann Franck Kessie sem skoraði.

Áfram héldu Fílabeinsstrendingar að pressa og Þjóðverjar í basli.

Annað mark var tekið af Þjóðverjum og var það réttur dómur er Havertz setti boltann í netið, en brotið var á varnarmanni Fílabeinsstrandarinnar stuttu áður.

Wirtz átti tvö góð færi en nýtti ekki áður en flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Í þeim síðari setti Julian Nagelsmann hinn markaóða Deniz Undav sem átti eftir að breyta leiknum.

Hann jafnaði metin á 68. mínútu eftir frábæra sendingu Nadiem Amiri frá hægri. Áttunda mark hans í síðustu átta leikjum og þegar komið var í uppbótartíma gerði hann sigurmarkið eftir sturlaða sendingu frá Felix Nmecha, sem sendi fastan bolta í gegnum línurnar á Undav sem skaut Þjóðverjum í 32-liða úrslitin.

Þjóðverjar eru á toppnum með fullt hús eftir tvo leiki, en Fílabeinsströndin í öðru sæti með 3 stig.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.