Fotbolti.net
20.06.26 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson

Hundrað HM-mörk en aldrei unnið gull

Hundrað HM-mörk en aldrei unnið gull
Canon

Mynd: EPA

Hollendingar urðu áttunda þjóðin til að rjúfa hundrað marka múrinn á heimsmeistaramótinu þegar þeir unnu sannfærandi 5-1 sigur á Svíþjóð í kvöld.
Brian Brobbey og Cody Gakpo skoruðu báðir tvennu og þá átti Crysencio Summerville stórkostlega innkomu af bekknum með mark og stoðsendingu.

Hollendingar hafa þar með skorað yfir hundrað mörk á HM frá því þjóðin tók fyrst þátt árið 1934.

Þeir eru að spila á sínu ellefta heimsmeistaramóti og rufu hundrað marka múrinn með öðru marki sínu gegn Svíum áður en þeir bættu þremur mörkum við til viðbótar.

Aðeins sjö þjóðir höfðu afrekað þetta fyrir heimsmeistaramótið í ár, en Hollendingar bættust í þann hóp í kvöld.

Þeir eru hins vegar fyrsta þjóðin til að skora yfir hundrað mörk á HM án þess að hafa unnið gullið. Argentína, Brasilía, England, Frakkland, Ítalía, Spánn og Þýskaland eru einnig í þessum hópi, en þær þjóðir eiga það sameiginlegt að hafa allar unnið mótið.

Hollendingar hafa þrisvar fengið silfur á HM, árin 1974, 1978 og 2010.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.