Fotbolti.net
20.06.26 - 21:27
Brynjar Ingi Erluson

Leikmenn fá sjálfir að ákveða hvort þeir taki í höndina á Partey

Leikmenn fá sjálfir að ákveða hvort þeir taki í höndina á Partey
Canon

Mynd: EPA

Enska fótboltasambandið hefur sett það í hendur á leikmönnum landsliðsins hvort þeir vilji taka í höndina á Thomas Partey, leikmanni Gana, eða ekki.
England og Gana mætast í annarri umferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins á þriðjudag.

Partey var ekki með í fyrsta leik Gana gegn Panama um helgina þar sem honum var meinað að ferðast inn til Kanada vegna nauðgunarákæru sem hann stendur frammi fyrir á Bretlandseyjum.

Miðjumaðurinn, sem var á mála hjá Arsenal þegar meint atvik áttu sér stað, var ákærður á síðasta ári og hafa fleiri konur stigið fram gegn honum.

Hann er ákærður fyrir meint brot sem eiga að hafa átt sér stað 2020-2022. Dæmt verður í málum hans á næsta ári en hann hefur neitað sök.

Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að setja það í hendur leikmanna enska landsliðsins hvort þeir taki í höndina á Partey fyrir landsleik þjóðanna á þriðjudag.

Tveir leikmenn enska landsliðsins voru liðsfélagar Partey hjá Arsenal, þeir Bukayo Saka og Declan Rice.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.