Liðsfélagi Daníelu skoraði sjö - Erfiður mánuður hjá Íslendingaliðinu

Daníela Dögg og stöllur eru að gera frábæra hluti í norsku deildinni

Mynd: Heimasíða Álasunds

Íslendingalið Vålerenga tapaði þriðja deildarleiknum í röð í norsku úrvalsdeildinni er liðið lá fyrir Rosenborg, 3-2, í dag.
Síðasti mánuður hefur verið Vålerenga erfiður. Liðið tapaði tveimur deildarleikjum í röð í lok maí og byrjun júní og féll síðan úr leik í 8-liða úrslitum bikarsins.
Í dag tapaði liðið fyrir Rosenborg, sem hefur veitt Vålerenga mikla samkeppni síðustu ár.
Arna Eiríksdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir voru báðar í byrjunarliði Vålerenga, en Selma Sól Magnúsdóttir var ekki í hópnum hjá Rosenborg.
Rosenborg er í 3. sæti með 24 stig en Vålerenga í 4. sæti með 19 stig.
Daníela Dögg Guðnadóttir kom inn af bekknum í ótrúlegum 8-1 stórsigri Álasunds á Bodö/Glimt. Katarina Sunde, liðsfélagi Daníelu, fór mikinn og skoraði sjö mörk.
Álasund, sem er nýliði í deildinni, hefur komið öllum á óvart og situr í 2. sæti með 25 stig, sex stigum á eftir toppliði Brann.