Líklega ekki meira með á HM

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nico Schlotterbeck, miðvörður þýska landsliðsins, verður líklega ekki meira með eftir að hafa meiðst í 2-1 sigrinum á Fílabeinsströndinni á HM í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Ótrúleg innkoma hjá Undav sem skaut Þjóðverjum áfram
Varnarmaðurinn meiddist eftir rúman stundarfjórðung og þurfti aðhlynningu inni á vellinum. Hann gat þó haldið leik áfram og kláraði fyrri hálfleikinn.
Schlotterbeck sneri hins vegar ekki aftur út á völlinn eftir hlé og kom Antonio Rüdiger inn í hans stað.
Nú er útlit fyrir að Schlotterbeck verði ekki meira með á HM. Julian Nagelsmann, þjálfari Þjóðverja, sagði eftir leik að grunur væri um liðbandsmeiðsli í ökkla.
„Grunur leikur á að hann hafi meiðst á liðbandi. Þetta lítur ekki vel út,“ sagði Nagelsmann.
Schlotterbeck lék allan leikinn gegn Curacao og hefur verið fastamaður í vörn Þjóðverja þegar hann er heill. Mögulegt fráfall hans væri því mikið áfall fyrir þýska liðið, sem er komið áfram í 32-liða úrslit.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!