Arnar Gunnlaugs: Sagði honum í gær að hann þyrfti að skora almennilegt mark


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar, Víkingar Íslandsmeistarar 2023, er það orðið staðfest?
Nei það er ekki orðið staðfest. Við þurfum að klára okkar leiki, ég veit það að þetta lítur vel út. Megum fagna vel í kvöld og fá okkur smá kampavín en frá og með morgundeginum fullan fókus á leikinn á móti Blikum og svo Fram og svo úrslitakeppnin. En þetta er 11 stiga forskot með góða markatölu þannig að þetta lítur vel út sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga eftir góðan 0 - 4 sigur á Val í kvöld. Arnar var í leikbanni í leiknum í kvöld og sat upp í stúku en kom þó í viðtal eftir leik.
Nei ég væri að ljúga því . Í svona stórleik, við setjum fyrsta markið og það gefur okkur byr undir báða vængi. Það sem skóp þennan sigur var ekkert endilega þessi flottu fjögur mörk sem við skorum heldur hrikalega þéttur varnarleikur og fórnfýsi sem strákarnir sýndu að skilja þessar færslur sem ég var að biðja þá um. Það er erfitt fyrir Bidda (Birni Snæ) að droppa svona langt niður til að trakka Birki Má.
Erum búnir að leggja mikla áherslur á í vetur að stjórna leik ekki bara með bolta heldur líka án bolta. Strákarnir eru búnir að vera geggjaðir í sumar og slá stigametið sem er eitthvað sem allir geta verið stoltir af en það er hungur í hópnum. Menn vilja klára þetta almennilega og svo er bikarúrslitaleikur þannig að það er að fullt að keppa.
Nánar er rætt við Arnar hér að ofan. Meðal annars um Loga Tómasson, hvernig það var að sitja upp í stúku og stuðninginn sem Víkingur er að fá.



