Fotbolti.net
20.09.15 - 19:04
Alexander Freyr Tamimi

Óli Jó: Klaufar að missa þetta niður

Auglýsing
Óli Jó og félagar gerðu jafntefli í Eyjum.

Óli Jó og félagar gerðu jafntefli í Eyjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var svekktur að missa unninn leik gegn ÍBV í Vestmannaeyjum niður í 3-3 jafntefli.

Valsarar lentu snemma undir en komust í 3-1. Eyjamenn jöfnuðu hins vegar metin með tveimur mörkum þegar líða tók að lokum leiksins.
„Þetta var skemmtilegur leikur og vel spilaður hjá okkur. Við vorum klaufar að missa þetta niður síðustu tíu mínúturnar. Við vorum alltaf með þennan leik undir control og það er bara fúlt að klára ekki leikinn vegna þess að við eigum að gera það,\" sagði Ólafur eftir leikinn.



„Eins og leikurinn þróaðist fannst mér við vera ofan á og við áttum náttúrulega að klára hann. En að sama skapi sýndu þeir mikinn karakter að jafna leikinn. Við vorum farnir að taka of marga sénsa.\"



Viðtalið má sjá hér að ofan.







Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.