Fotbolti.net
20.09.20 - 15:31
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Forsberg og Poulsen skoruðu í góðum sigri Leipzig

Dani Olmo, Lukas Klostermann, Emil Forsberg og Yussuf Poulsen eru mikilvægir hlekkir í sterku liði RB Leipzig.

Dani Olmo, Lukas Klostermann, Emil Forsberg og Yussuf Poulsen eru mikilvægir hlekkir í sterku liði RB Leipzig.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>RB Leipzig 3 - 1 Mainz</b>
1-0 Emil Forsberg ('17, víti)
2-0 Yussuf Poulsen ('21)
2-1 Jean-Philippe Mateta ('48)
3-1 Amadou Haidara ('51)
RB Leipzig lá í sókn frá upphafi til enda í sannfærandi 3-1 sigri gegn Mainz í fyrstu umferð þýska deildartímabilsins.

Sænski kantmaðurinn Emil Forsberg gerði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu og tvöfaldaði danski framherjinn Yussuf Poulsen forystuna skömmu síðar.

Leipzig leiddi verðskuldað í hálfleik en Jean-Philippe Mateta minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks, eftir stoðsendingu frá sænska framherjanum Robin Quaison.

Skömmu síðar tvöfaldaði Amadou Haidara forystu Leipzig á nýjan leik og í þetta sinn átti Forsberg stoðsendinguna.

Það var því einn Skandínavi sem átti stóran þátt í hverju einasta marki leiksins. Tveir Svíar og einn Dani.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Augsburg000
1Borussia D.2+56
2Bayern2+46
2Bayer000
3Bayern000
3Hamburger2+36
4Borussia D.000
4Borussia M.2+14
5Borussia M.000
5Hoffenheim2+14
6Eintracht Frankfurt000
6Freiburg2+14
7Elversberg000
7Schalke 041+23
8Freiburg000
8Hannover1+13
9Hertha203
9Hamburger000
10Hoffenheim000
10Stuttgart2-13
11Koln000
11Wolfsburg2-23
12Augsburg2-11
12Mainz000
13Paderborn000
13Eintracht Frankfurt2-11
14RB Leipzig000
14Bayer2-21
15Schalke 04000
15Mainz2-20
16Wolfsburg34-2429
16Koln2-30
16Stuttgart000
17Union Berlin000
17Heidenheim34-3126
17RB Leipzig2-30
18Werder000
18Werder2-30
18St. Pauli34-3126
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.