Elías Rafn Ólafsson átti frábæran leik í marki FC Midtjylland gegn FC Kaupmannahöfn í dönsku Superliga í gær. Midtjyllan vann 0-1 sigur á heimavelli FCK, Parken.
Elías hefur að undanförnu fengið tækifærið í markinu hjá Midtjylland í fjarveru Jonas Lössl. Elías hefur spilað þrjá deildarleiki, haldið hreinu í þeim öllum og liðið unnið alla leikina.
Elías hefur að undanförnu fengið tækifærið í markinu hjá Midtjylland í fjarveru Jonas Lössl. Elías hefur spilað þrjá deildarleiki, haldið hreinu í þeim öllum og liðið unnið alla leikina.
Sjá einnig:
„Stærsta upplifunin, ég er orðlaus"
Þjálfari Midtjylland, Bo Henriksen, talaði vel um Elías í viðtali við bold.dk eftir leikinn í gær.
„Við höfum alltaf vitað að við værum með góðan markvörð í Elíasi. Síðustu þrjá eða fjóra daga hefur hann verið brosandi í hvert einasta skipti sem ég hef litið á hann. Það sýnir að honum leið vel og hann var spenntur fyrir leiknum," sagði Henriksen.
„Hann er ískaldur. Sumir í starfsliðinu veltu því fyrir sér hvort við ættum að undirbúa hann eitthvað sérstaklega fyrir að vera fyrir framan þetta marga áhorfendur. En honum gat ekki verið meira sama um það."
Elías var á láni hjá Fredericia í fyrra í dönsku B-deildinni. Henriksen býst við því að hann og Lössl verði í harðri samkeppni um markvarðarstöðuna.
„Núna verður hann í harðri baráttu við Lössl og þannig á það að vera. Elías er markvörður sem getur náð mjög langt og hann er bara að verða betri og betri."
„Við vonumst til að Lössl getir farið að æfa fljótlega. Við eigum átján leiki eftir fram að jólum og við þurfum á öllum að halda," sagði Henriksen.
Athugasemdir