Fotbolti.net
20.09.26 - 15:21
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið ÍBV og Vals: Tvær breytingar hjá báðum liðum

Samúel Kári kemur aftur í lið Vals

Samúel Kári kemur aftur í lið Vals

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV mætir Val í neðri hlutanum í Bestu deild karla á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum klukkan 16:00 í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 0 Valur
Tvær breytingar eru á liði Eyjamanna. Halldór Jón Sigurður Þórðarson og Róbert Elís Hlynsson koma inn fyrir Viggó Valgeirsson, sem fer á bekkinn, og Omar Sowe sem fór meiddur af velli í síðasta leik og er ekki í hópnum.

Það er sama uppi á teningnum hjá Val sem gerir einnig tvær breytingar frá 4-1 sigrinum á Þór.

Petrick Pedersen fer á bekkinn og Tryggvi Hrafn Haraldsson er ekki með. Samúel Kári Friðjónsson og Shkelzen Veseli koma inn í byrjunarliðið, en Samúel Kári tók út leikbann í síðasta leik.

Eyjamenn eru á botninum með 18 stig en Valur er í 8. sæti með 27 stig.

Byrjunarlið ÍBV

  • 33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
  • 4. Mattias Edeland
  • 8. Bjarki Björn Gunnarsson
  • 11. Aron Lucas Vokes
  • 22. Eiður Atli Rúnarsson
  • 23. Arnór Ingi Kristinsson
  • 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
  • 26. Felix Örn Friðriksson
  • 27. Róbert Elís Hlynsson
  • 30. Vicente Rafael Valor Martínez
  • 80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Byrjunarlið Valur

  • 1. Frederik August Albrecht Schram (m)
  • 3. Hörður Ingi Gunnarsson
  • 4. Markus Lund Nakkim
  • 5. Kristófer Dagur Arnarsson
  • 7. Samúel Kári Friðjónsson
  • 10. Jónatan Ingi Jónsson (f)
  • 11. Ingimar Torbjörnsson Stöle
  • 17. Lúkas Logi Heimisson
  • 19. Dagur Orri Garðarsson
  • 24. Myles A Veldman
  • 29. Shkelzen Veseli
Omar Sowe er ekki með ÍBV

Omar Sowe er ekki með ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Stjarnan23-631
2Valur23-330
3FH23-924
4KA24-1323
5Þór24-3421
6ÍBV23-1518
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.