Fotbolti.net
20.09.26 - 15:11
Sverrir Örn Einarsson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Keflavíkur og Fram: Frans byrjar sinn fyrsta leik í sumar

Reynsluboltinn Frans Elvarsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í sumar

Reynsluboltinn Frans Elvarsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík tekur á móti Fram á HS Orkuvellinum í dag í efri hluta Bestu deildarinnar en flautað verður til leiks klukkan 16:00.

Fram eygir von um annað sæti deildarinnar sem gefur sæti í 2.umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar en liðið á í harðri baráttu við KR sem tapaði stigum á heimavelli í gær gegn Íslandsmeisturum Víkinga.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 0 Fram
Þjálfarar beggja liða hafa opinberað byrjunarlið sín og má sjá þau hér að neðan.

Heimamenn í Keflavík gera þrjár breytingar á sínu liði frá 4-1 tapinu gegn Víkingum. Muhamed Alghoul var seldur tl Sýrlands á dögunum og þá fer Nacho Heras á bekkinn. Inn í þeirra stað koma þeir Eiður Orri Ragnarsson og Frans Elvarsson. Þá fær hinn ungi Egill Valur Karlsson tækifæri í stað Ásgeirs Páls Magnúnssonar.

Fram gerir sömuleiðis tvær breytingar á sínu liði frá 3-1 tapinu gegn Breiðablik. Simon Tibbling og Már Ægisson fá sér sæti á bekknum en inn í þeirra stað koma Fred og Ægir Jarl Jónasson.

Byrjunarlið Keflavík

  • 1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
  • 2. Elvis Okello Bwomono
  • 6. Sindri Snær Magnússon
  • 7. Dagur Ingi Valsson
  • 10. Stefan Alexander Ljubicic
  • 20. Marin Brigic
  • 21. Alpha Conteh
  • 23. Eiður Orri Ragnarsson
  • 25. Frans Elvarsson (f)
  • 47. Egill Valur Karlsson
  • 88. Mate Simicic

Byrjunarlið Fram

  • 22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
  • 3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
  • 5. Kyle Douglas Mc Lagan
  • 8. Haraldur Einar Ásgrímsson
  • 9. Róbert Hauksson
  • 10. Frederico Bello Saraiva
  • 18. Ægir Jarl Jónasson
  • 19. Kennie Knak Chopart (f)
  • 25. Freyr Sigurðsson
  • 26. Sigurjón Rúnarsson
  • 29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.