Fotbolti.net
20.09.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Emery: Býst við að sjá Tottenham í topp fjórum

Emery: Býst við að sjá Tottenham í topp fjórum
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery þjálfari Aston Villa var ánægður með fyrsta sigurinn á deildartímabilinu sem kom á Tottenham Hotspur Stadium í gær.
Þúsundir yfirgáfu Tottenham Hotspur Stadium snemma
TENGT EFNI

Þúsundir yfirgáfu Tottenham Hotspur Stadium snemma

Villa komst í þriggja marka forystu áður en Tottenham minnkaði muninn niður í eitt mark á lokakaflanum. Fyrir leik sagðist Emery búast við því að sjá Tottenham enda í einu af fjórum efstu sætu ensku úrvalsdeildarinnar næsta vor.

„Ég býst við að sjá Tottenham í topp fjórum þegar tímabilinu lýkur. De Zerbi er stórkostlegur þjálfari og hann þarf tíma. Hann er með stórkostlegan leikmannahóp," sagði Emery fyrir leik.

Tottenham hafði ekki skorað eitt einasta mark í úrvalsdeildinni fyrir heimaleikinn gegn Villa og eru lærlingar De Zerbi eru með tvö stig eftir tvö markalaus jafntefli. Þeir sýndu frábærar rispur í leiknum gegn Villa og sérstaklega í fyrri hálfleik, en Zion Suzuki nýr markvörður Villa varði meistaralega.

Emery hrósaði Suzuki og Nicolas Jackson að leikslokum. Jackson átti frábæran leik þar sem hann virtist óþreytandi í fremstu víglínu. Hann hljóp út um allt og verðskuldaði að skora annað mark leiksins. Suzuki og Jackson komu báðir til Villa í sumarglugganum.

„Nýju mennirnir eru klárir í slaginn, það er augljóst. Þetta eru leikmenn sem gefa ekkert eftir og eru mættir til að fylla í mjög mikilvæg skörð fyrir okkur. Við sýndum góða frammistöðu í dag, Zion var aftur frábær í markinu og Jackson er að taka augljósum framförum."

Næsti leikur Aston Villa er á heimavelli gegn Brentford 10. október.
Emery: Býst við að sjá Tottenham í topp fjórum
Canon

Mynd: EPA

Emery: Býst við að sjá Tottenham í topp fjórum
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City4+612
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Everton5+39
6Leeds4+48
7Hull City5+28
8Newcastle508
9Chelsea5-27
10Liverpool4+26
11Ipswich Town5-46
12Nott. Forest5-15
13Man Utd404
14Sunderland4-24
15Aston Villa5-54
16Bournemouth4-13
17Crystal Palace4-53
18Coventry5-93
19Tottenham5-62
20Fulham4-31
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.