Fotbolti.net
20.09.26 - 11:07
Elvar Geir Magnússon

Eyjamenn ekki unnið síðan Valur kom síðast í heimsókn

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV. Eyjamenn hafa ekki unnið leik síðan 4. júlí.

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV. Eyjamenn hafa ekki unnið leik síðan 4. júlí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við þurfum að fara safna stigum, getum ekki bara horft á KA og Þór. Ennþá fjórir leikir eftir, tólf stig og ég held að þetta verður slagur til síðustu umferðar," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir tap gegn Stjörnunni á dögunum.

Eyjamenn taka á móti Val í dag klukkan 16 á Hásteinsvelli. Þeir eru í neðsta sæti, fimm stigum frá öruggu sæti, og þurfa nauðsynlega á öllum stigunum þremur að halda í leik dagsins.

ÍBV hefur mætt Stjörnunni í Garðabæ í síðustu tveimur leikjum, gerði fyrst 2-2 jafntefli í Miðgarði og tapaði svo 2-0 á Samsungvellinum.

ÍBV er án sigurs í síðustu níu leikjum, liðið vann síðast þann 4. júlí en það var einmitt heimaleikurinn gegn Val sem fram fór á Goslokahátíð. Alex Freyr Hilmarsson skoraði þá eina mark leiksins. Það eru því 78 dagar liðnir síðan ÍBV vann síðast leik.
Innkastið - Skortur á reisn
TENGT EFNI

Innkastið - Skortur á reisn

Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 0 Valur
Leikir dagsins í Bestu deildinni

Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
Alex Freyr Hilmarsson skoraði sigurmarkið gegn Val þann 4. júlí.

Alex Freyr Hilmarsson skoraði sigurmarkið gegn Val þann 4. júlí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Stjarnan23-631
2Valur23-330
3FH23-924
4KA24-1323
5Þór24-3421
6ÍBV23-1518
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.