Fotbolti.net
20.09.26 - 12:50
Brynjar Ingi Erluson

Van Dijk: Taplausir en samt ekki sáttir

Virgil van Dijk

Virgil van Dijk

Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir leikmenn liðsins ekki vera ánægða með byrjun tímabilsins þrátt fyrir að Liverpool sé enn taplaust.
Byrjunarliðin í enska: Þrjár breytingar hjá Liverpool - Ndiaye kemur inn í stað Foden
TENGT EFNI

Byrjunarliðin í enska: Þrjár breytingar hjá Liverpool - Ndiaye kemur inn í stað Foden

Liverpool hefur unnið einn deildarleik og gert þrjú jafntefli, á meðan liðið hefur unnið leiki sína í deildabikarnum og Meistaradeildinni.

Byrjunin hefur því verið ágæt, en Van Dijk segir hana einfaldlega ekki nógu góða enda séu kröfurnar miklar hjá Liverpool.

„Við erum taplausir en erum samt ekki nógu ánægðir með byrjun tímabilsins. Ástæðan er einfaldlega sú að kröfurnar hjá Liverpool eiga að vera miklu meiri,“ sagði Van Dijk.

Liverpool heimsækir Bournemouth klukkan 13:00 og segir Hollendingurinn það vera stórt próf fyrir liðið.

„Við erum enn að móta liðið, en það eru jákvæð merki og margt gott í gangi. Nú er það undir okkur komið að halda áfram að bæta okkur og keyra áfram á þessu. Leikurinn í dag verður því gott próf fyrir okkur,“ sagði Van Dijk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.