Fotbolti.net
20.10.26 - 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Ég vil að leikmennirnir njóti fótboltans eins og þegar þeir voru börn"

„Ég vil að leikmennirnir njóti fótboltans eins og þegar þeir voru börn"
Canon

Mynd: EPA

Tottenham vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í gær þegar liðið vann 3-1 sigur á Coventry.

James Maddison skoraði glæsilegt mark en þetta var fyrsta markið hans eftir langvarandi meiðsli. Þegar Roberto De Zerbi var spurður út í Maddison sagðist hann vilja sjá leikmennina njóta sín.
„Við erum með stórkostlegan völl og frábæra stuðningsmenn. Þeir hafa þjást mikið síðustu 2-4 tímabil og við getum ekki ímyndað okkur hvað þeir hafa gengið í gegnum," sagði De Zerbi.

„Ég vil að leikmennirnir njóti fótboltans eins og þegar þeir voru börn. Stundum er pressa að ná í úrslit, eða kemur frá fólkinu, samfélagsmiðlum eða fjölmiðlum og setur of mikla pressu á okkur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.