Fotbolti.net
20.10.26 - 17:38
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Kompany með veirusýkingu

Vincent Kompany

Vincent Kompany

Canon

Mynd: EPA

Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, gæti misst af leik liðsins gegn Arsenal í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á morgun.
Leikurinn fer fram á Allianz-leikvanginum annað kvöld, en Kompany hefur verið að glíma við veirusýkingu í mjöðm sem varð til þess að hann missti af æfingu liðsins í dag. Hann var heldur ekki viðstaddur fréttamannafundinn fyrir leikinn.

Aaron Danks, aðstoðarmaður Kompany, mætti á fundinn í hans stað og greindi frá stöðu belgíska þjálfarans.

„Vincent er með veirusýkingu og það er mikilvægt að hann fái næga hvíld. Við fylgjumst grannt með stöðunni og sjáum hvernig honum líður á morgun. Við erum í stöðugu sambandi við hann og hann heldur áfram að koma með sínar ábendingar. Hvort hann verði tilbúinn fyrir leikinn á morgun á eftir að koma í ljós,“ sagði Danks.

Hann segir veikindin þó ekki hafa áhrif á undirbúning Bayern fyrir leikinn gegn Arsenal.

„Það breytist ekki mikið hjá mér. Við erum með sterkt þjálfarateymi og skýrt verklag sem við fylgjum. Það mikilvægasta er að halda orkunni í hópnum uppi og sjá til þess að leikmennirnir verði tilbúnir fyrir leikinn á morgun,“ sagði Danks enn fremur.

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG2+76
2Barcelona2+76
3Aston Villa2+76
4Stuttgart2+56
5Liverpool2+46
6Sporting2+46
7Arsenal2+46
8Real Madrid2+26
9Betis2+26
10Dortmund3+16
11Bayern2+54
12Shakhtar D2+24
13Fenerbahce3-54
14Como2+23
15Man Utd2+23
16Villarreal2+13
17Atletico Madrid2+13
18Club Brugge203
19Man City203
20Lens2-13
21AEK2-13
22RB Leipzig2-23
23Sabah FK3-33
24Feyenoord2-33
25Bodö/Glimt2-43
26Roma2-11
27PSV2-11
28Viking FK2-21
29Inter2-20
30Porto2-30
31Napoli2-30
32Slavia Prag3-40
33LASK Linz2-40
34Lille2-40
35Galatasaray2-50
36Slovan2-80
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.