Fotbolti.net
20.10.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Risastór goðsögn" sem hafði mikil áhrif á íslenskan fótbolta

Natasha Anasi í leik með Grindavík/Njarðvík í sumar.

Natasha Anasi í leik með Grindavík/Njarðvík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Risastór goðsögn," sagði Snæbjört Pálsdóttir í Uppbótartímanum þegar rætt var um Natöshu Anasi sem er búin að leggja skóna á hilluna eftir frábæran feril hér á Íslandi.

Það var tilkynnt fyrir síðasta leik hjá Grindavík/Njarðvík að Natasha væri hætt þar sem hún á von á barni.
Hún spilaði fyrst á Íslandi um mitt sumar 2014 og á að baki hátt í 200 deildarleiki á Íslandi. Hún lék með ÍBV, Keflavík og Breiðabliki áður en kallið kom frá Noregi þar sem hún samdi við Brann. Þar glímdi hún við erfið meiðsli og sneri svo til Vals í sumarglugganum 2024. Grindavík/Njarðvík fékk hana til sín fyrir ári síðan og hefur hún spilað mikilvægt hlutverk þar í sumar.

Natasha er fædd í Bandaríkjunum og fékk árið 2019 íslenskan ríkisborgararétt. Natasha, sem er 35 ára, á níu landsleiki og eitt mark á ferilskránni fyrir íslenska kvennalandsliðið. Hún var hluti af landsliðshópnum sem fór til Sviss á Evrópumótið í fyrra.

„Hún er týpan sem deyr fyrir klúbbinn. Þetta er risastórt skarð fyrir Grindavík/Njarðvík. Ég held samt að hún eigi eftir að vera á hliðarlínunni hjá þeim og öskra þær áfram með barnavagninn," sagði Snæbjört.

„Þetta mun held ég hafa ótrúlega mikil áhrif á Grindavík/Njarðvík og það sem þær standa fyrir. Hún er einn af elstu leikmönnunum og er Njarðvíkingur í dag. Það er fyrsta forgangsatriði fyrir næsta tímabil að finna þennan karakter í liðið sem passar inn í hlutverkið sem hún hafði," sagði Arnar Páll Garðarsson í þættinum.

Hún hafði mikil áhrif á íslenskan fótbolta og gerði hér frábæra hluti.

„Mér finnst það segja svo mikið að Steini valdi hana í síðasta landsliðshóp. Hún er mikil stemningskona í hóp, hún er með reynslu og er ógeðslega góð í fótbolta. Hún var að koma til baka á þessu tímabili eftir krossbandsslit en átti samt frábært tímabil. Hún er alveg risaþáttur í þessari velgengni sem Grindavík/Njarðvík átti í sumar. Þeim var spáð beint niður," sagði Snæbjört.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.
Natasha fyrir leik með íslenska landsliðinu.

Natasha fyrir leik með íslenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir síðasta leik hjá Grindavík/Njarðvík.

Fyrir síðasta leik hjá Grindavík/Njarðvík.

Canon

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.