Fotbolti.net
20.10.26 - 19:14
Brynjar Ingi Erluson

Taylor fær stöðuhækkun í Tyrklandi

Taylor fær stöðuhækkun í Tyrklandi
Canon

Mynd: EPA

Enski dómarinn Anthony Taylor hefur verið ráðinn yfirmaður dómaramála í Tyrklandi, en þetta staðfesti tyrkneska fótboltasambandið í dag.
Taylor var um árabil einn af fremstu dómurum ensku úrvalsdeildarinnar og hefur dæmt fjölda stórleikja víðs vegar um Evrópu.

Hann hefur undanfarið gegnt stöðu yfirmanns afreksdómgæslu í Tyrklandi, en hefur nú fengið stöðuhækkun og tekur við sem yfirmaður dómaramála í landinu, þar sem sérstök áhersla verður lögð á dómgæslu í úrvalsdeildinni.

Taylor tekur við af Ferhat Gündogdu sem var látinn fara og síðar handtekinn vegna meintrar aðildar að umfangsmiklu veðmálahneyksli sem skók tyrkneska dómarastétt á síðasta ári.

Meira en hundrað dómarar voru rannsakaðir vegna málsins og settir í tímabundið bann, auk þess sem fjöldi einstaklinga var handtekinn.

Hneykslið er eitt það umfangsmesta sem komið hefur upp í evrópskum fótbolta á síðustu árum, en rannsóknin náði einnig til yfir þúsund fótboltamanna í tyrknesku deildarkeppnunum.

Taylor fær því það stóra verkefni að koma dómgæslunni aftur á réttan kjöl og endurheimta traust á dómarastéttinni eftir allt sem á undan hefur gengið.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.