Fotbolti.net
20.10.26 - 15:41
Elvar Geir Magnússon

Teemu Pukki að leggja skóna á hilluna

Teemu Pukki.

Teemu Pukki.

Canon

Mynd: EPA

Teemu Pukki, fyrrum sóknarmaður Norwich og finnska landsliðsins, hefur tilkynnt að hann muni leggja skóna á hilluna þegar tímabilinu í Finnlandi lýkur 8. nóvember.

Pukki er 36 ára og lagði landsliðsskóna á hilluna í fyrra en hann er markahæsti leikmaður Finnlands frá upphafi með 43 mörk í 133 leikjum.
Hann skoraði 88 mörk í 210 leikjum fyrir Norwich á árunum 2018 til 2023 og hjálpaði Kanarífuglunum að komast tvisvar upp í úrvalsdeildina.

„Ég hef fengið miklu meira út úr fótboltanum en ég hafði nokkurn tíma dreymt um þegar ég var lítill drengur. Ég hef séð heiminn og öðlast reynslu vegna fótboltans. Það hefur ekki alltaf verið gaman en ástin fyrir fótboltanum hefur alltaf haldist," segir Pukki.

Hann hefur spilað fyrir HJK Helsinki í heimalandi sínu síðan 2025. Einnig hefur hann leikið fyrir Celtic, Schalke, Bröndby og Minnesota United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.