20.10.26 - 13:24
Kári Snorrason
Ten Hag: Ronaldo brást mér og liðinu

Sá hollenski fór mikinn í ítarlegu viðtali við Athletic.

Mynd: EPA

Ekki hrifinn af Ten Hag.

Mynd: EPA

Fór í umdeilt viðtal við Piers Morgan.

Mynd: X

Erik ten Hag, fyrrverandi stjóri Manchester United, fór yfir víðan völl í ítarlegu viðtali við The Athletic um tímann sinn hjá United.
Sá hollenski sagði meðal annars að Cristiano Ronaldo hafi brugðist bæði sér og liðinu og gagnrýndi hann portúgölsku stórstjörnuna harðlega.
Ronaldo var hjá United þegar Ten Hag tók við sumarið 2022 en yfirgaf félagið nokkrum mánuðum síðar eftir deilur við Ten Hag.

TENGT EFNI
Ronaldo opnar sig í viðtali við Piers Morgan: Man Utd sveik mig og gerði mig að svörtum sauð
„Hann brást mér og liðinu, því við höfðum gert ráð fyrir honum,“ sagði Ten Hag og sagðist hann hafa flogið til Portúgal og rætt við Ronaldo áður en hann tók við starfinu.
„Hann er auðvitað einn besti knattspyrnumaður sögunnar og ég bar mikla virðingu fyrir honum,“ sagði Hollendingurinn og setti hann út á vinnuframlag Ronaldo.
„Hann hljóp hvorki þegar við vorum með boltann né þegar við vorum án hans. Ástæðan var sú að hann hafði ekki undirbúið sig nægilega vel.“
„Öll topplið verða að finna pláss fyrir sína bestu leikmenn, en bestu leikmennirnir verða líka að leggja sitt af mörkum fyrir liðið,“ sagði Ten Hag jafnframt.
Ronaldo neitaði að koma inn á sem varamaður gegn Tottenham í október 2022 og var í kjölfarið skilinn út undan hópnum gegn Chelsea í næsta leik.
Ronaldo fór í umdeilt viðtal við Piers Morgan í nóvember sama ár og sagðist þar ekki bera virðingu fyrir Ten Hag og að hann hefði verið svikinn af United. Samningi hans var í kjölfarið rift með gagnkvæmu samkomulagi.
Í viðtali Ten Hag við The Athletic ræddi hann einnig um svikin loforð sem hann telur hafa átt þátt í brottrekstri sínum, leikmennina sem hann vildi fá til félagsins og þá eitruðu menningu sem hann segir hafa ríkt innan félagsins.

Heimild: The Athletic

Ekki hrifinn af Ten Hag.

Mynd: EPA

Fór í umdeilt viðtal við Piers Morgan.

Mynd: X