Fotbolti.net
20.10.26 - 12:52
Kári Snorrason

Þór líklegra til að falla þrátt fyrir forskot

Líklegri til að falla þrátt fyrir forskot.

Líklegri til að falla þrátt fyrir forskot.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lokaumferð Bestu deildarinnar fer fram næstkomandi laugardag þar sem Akureyrarliðin Þór og KA berjast um að halda sæti sínu í deildinni.

Þór situr í tíunda sæti deildarinnar með eins stigs forskot á KA fyrir lokaumferðina. Þórsarar sækja FH heim í Kaplakrika á meðan KA tekur á móti föllnum Eyjamönnum.

Þrátt fyrir að vera með eins stigs forystu er Þór talið líklegra til þess að falla samkvæmt veðbankanum Epicbet. Stuðullinn á að Þór falli er 1.90 en 2.05 er á að KA falli.
Ljóst er að KA þarf að sækja í hið minnsta jafntefli til þess að halda sér í deildinni og treysta á að FH myndi vinna Þór.

Skyldi Þór gera jafntefli í Kaplakrika þyrfti KA að vinna ÍBV til að halda sér en með sigri í Hafnarfirði halda Þórsarar sér uppi.

laugardagur 24. október

Besta karla - Efri hluti
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (ELKEM völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Þór mætir FH en KA tekur á móti föllnum Eyjamönnum.

Þór mætir FH en KA tekur á móti föllnum Eyjamönnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur26-234
2Stjarnan26-1431
3FH26-630
4Þór26-3127
5KA26-1326
6ÍBV26-1422
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.