Fotbolti.net
20.10.26 - 12:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tíu í banni í lokaumferðinni

Daníel er aftur kominn í leikbann, fær tveggja leikja bann í þetta skiptið.

Daníel er aftur kominn í leikbann, fær tveggja leikja bann í þetta skiptið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verða tíu úr Bestu deildinni í leikbanni þegar lokaumferðin í Bestu deildinni fer fram á laugardag; níu leikmenn og þjálfari Breiðabliks, Ólafur Ingi Skúlason.

27. umferðin verður öll spiluð klukkan 14:00 á laugardag. Einungis er spenna um hvort Þór eða KA halda sæti sínu í deildinni. Þá berjast Breiðablik og ÍA um 4. sætið en það sæti hefur enga stóra merkingu nema að vera ofar en 5. sætið. Að sama skapi geta FH og Stjarnan haft sætaskipti í 8. og 9. sætinu.
Daníel Hafsteinsson (Víkingur) og Freyr Sigurðsson (Fram) verða í banni í leik liðanna á Víkingsvelli. Ásgeir Helgi Orrason, Ólafur Ingi Skúlason og Anton Logi Lúðvíksson verða ekki með Breiðabliki gegn KR á Meistaravöllum og Erik Tobias Sandberg verður ekki með ÍA gegn Keflavík á Akranesi.

Alex Þór Hauksson verður ekki með Stjörnunni á Samsungvellinum gegn Val, Felix Örn Friðriksson og Bjarki Björn Gunnarsson verða ekki með ÍBV gegn KA á Greifavellinum og Tómas Orri Róbertsson verður ekki með FH gegn Þór á Kaplakrikavelli.

27. umferðin
laugardagur 24. október
Besta karla - Efri hluti
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (ELKEM völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Ólafur Ingi fékk rautt spjald gegn Víkingi og verður ekki á hliðarlínunni í lokaumferðinni.

Ólafur Ingi fékk rautt spjald gegn Víkingi og verður ekki á hliðarlínunni í lokaumferðinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Felix verður ekki með ÍBV gegn KA.

Felix verður ekki með ÍBV gegn KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.26+5163
2KR26+3053
3Fram26+946
4ÍA26-137
5Breiðablik26+236
6Keflavík26-1129

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur26-234
2Stjarnan26-1431
3FH26-630
4Þór26-3127
5KA26-1326
6ÍBV26-1422
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.