20.10.26 - 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vendipunkturinn fyrir FH

Ída Marín Hermannsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ída Marín Hermannsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það má segja að það hafi verið ákveðinn vendipunktur á tímabilinu í Bestu deild kvenna þegar Ída Marín Hermannsdóttir yfirgaf FH og samdi við Hammarby í Svíþjóð.
Ída Marín hafði þá verið einn allra besti leikmaður deildarinnar en hún fékk tækifæri til að fara í afar gott lið erlendis. Ásdís Karen Halldórsdóttir átti að koma í hennar stað en hún var með klásúlu í samningi sínum og var einnig farin til Svíþjóðar nokkrum dögum síðar.

„Ég geng svo langt að segja að ef Ída hefði verið áfram, þá held ég að FH hefði orðið Íslandsmeistari," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum.
„Ég er með þá tilfinningu miðað við hvernig hún var að spila og hvernig leikmenn voru að finna hana trekk í trekk. Það er allavega mín tilfinning."
„En þetta er bara lærdómur. Þær eru með mikið af ungum leikmönnum," sagði Arnar en FH er með yngsta lið deildarinnar.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.