20.10.26 - 16:30
Kári Snorrason
Vildi fá Rice og Kane til United

Vildi fá Rice og Kane.

Mynd: EPA

Gekk til liðs við Bayern sama sumar og Ten Hag vildi fá hann.

Mynd: EPA

Vildi fá Rice og Kane.

Mynd: EPA
Erik ten Hag, fyrrverandi stjóri Manchester United, vildi fá Declan Rice og Harry Kane á Old Trafford í sumarglugganum árið 2023.
Hollenski stjórinn var í ítarlegu viðtali við The Athletic og sagði félagið ekki hafa sótt nægilega mótaða leikmenn til félagsins í hans stjóratíð.

Upphaflega vildi Ten Hag endurnýja kynnin við hollenska miðjumanninn Frenkie De Jong en fyrst hann var ekki falur beindi hann sjónum sínum að Rice.
„Vandamálið var að West Ham vildi ekki láta hann fara. Ég held að við hefðum getað gert meira til að láta reyna á það. Við vorum á sömu blaðsíðu, þeir reyndu, en ég veit ekki hvernig ferlið gekk.“
Rice, sem þá var 24 ára, gekk til liðs við Arsenal sama sumar fyrir 105 milljónir punda.
Í sama glugga var Harry Kane efstur á óskalista Ten Hag. „Ég sagði við þá: Ég vil aðeins einn leikmann – og þið vitið hvern. Ég barðist fyrir því. Ég heyrði að hann væri mjög jákvæður, en ég ræddi málið aldrei við hann. Ég veit ekki hvernig ákvörðunarferlið gekk fyrir sig hjá stjórnarmönnunum,“ sagði Ten Hag en svarið sem hann fékk var nei.