Fotbolti.net
20.11.21 - 16:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aguero að leggja skóna á hilluna vegna hjartavandamála

Aguero að leggja skóna á hilluna vegna hjartavandamála
Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero framherji Barcelona greindist með hjartsláttatruflanir á dögnunum. Nú segja fréttir að hann muni tilkynna það fljótlega að hann muni leggja skóna á hilluna.
Aguero sem kom til Barcelona frá Man City í sumar hefur ekki geta spilað mikið fyrir spænska félagið vegna meiðsla. Hann hefur aðeins tekið þátt í fimm leikjum.

Hann byrjaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í lok október en hann þurfti að fara af velli eftir 40 mínútur þar sem hann átti erfitt með andadrátt. Eftir rannsóknir komu hjartsláttatruflanir í ljós.

Eins og fyrr segir má búast við því að það komi tilkynning fyrr en síðar um að hann neyðist til að leggja skóna á hilluna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.