Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. nóvember 2021 17:22
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Man Utd gegn Watford: Wan-Bissaka og McTominay tvistaðir
Mynd: EPA
Aaron Wan-Bissaka og Scott McTominay fengu 2 í einkunn fyrir frammistöðuna í 4-1 tapi Manchester United gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Það er Samuel Luckhurst hjá Manchester Evening News sem gefur leikmönnum einkunnir eftir leik og fengu margir leikmenn United falleinkunn.

Wan-Bissaka og McTominay fengu aðeins 2. Harry Maguire, sem var rekinn af velli í síðari hálfleik, fær 3.

Donny van de Beek, sem fékk sjaldgæft tækifæri, var besti maður liðsins með 8.

Manchester United: De Gea (5), Wan-Bissaka (2), Lindelöf (5), Maguire (3), Shaw (5), McTominay (2), Matic (4), Sancho (5), Fernandes (3), Rashford (4), Ronaldo (6).
Varamenn: Van de Beek (8), Martial (4)
Athugasemdir
banner
banner
banner