Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 21. janúar 2022 15:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Danijel lagði upp mark fyrir aðallið Midtjylland - Elías lagði líka upp
Danijel Dejan
Danijel Dejan
Mynd: FC Midtjylland
Danijel Dejan Djuric spilaði sinn annan aðalliðsleik fyrir Midtjylland í dag, sá fyrsti var æfingaleikur á síðasta ári. Liðið lagði Esbjerg 5-1 í æfingaleik en liðin undirbúa sig fyrir komandi átök í dönsku deildunum, Midtjylland þeirri efstu og Esbjerg í næstefstu.

Danijel, sem er átján ára gamall, var í byrjunarliði Midtjylland og spilaði allan fyrri hálfleikinn. Hann lagði upp annað mark Midtjylland á níundu mínútu leiksins fyrir Mads Hansen.

Danijel vann boltann af leikmanni Esbjerg og sendi hann í gegn á Hansen sem var einn gegn markverði og kláraði í netið.

Elías Rafn Ólafsson var einnig í byrjunarliði Midtjylland og hann lagði einnig upp mark, þriðja mark liðsins á Awer Mabil eftir hálftíma leik. Markvörðurinn átti langa sendingu fram völlinn og Mabil gerði vel að klára með marki.

Bæði Danijel og Elías voru teknir af velli í hálfleik. Í liði Esbjerg var Ísak Óli Ólafsson í byrjunarliðinu en fór af velli á 30. mínútu vegna meiðsla. Þess má geta að þeir Danijel og Elías eru uppaldir í Breiðabliki og Ísak Óli er Keflvíkingur.

Sjá einnig:
Danijel vill reyna fyrir sér í fullorðinsbolta (16. des)


Athugasemdir
banner
banner
banner