Fotbolti.net
21.04.17 - 22:57
Ingimar Bjarni Sverrisson

Ingibjörg: Sóttu aðeins of mikið á okkur í seinni hálfleik

Auglýsing
Ingibjörg: Sóttu aðeins of mikið á okkur í seinni hálfleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Hertz
„Við héldum þessu vel í fyrri hálfleik, spiluðum þétta vörn og þær áttu ekkert það mikið af sénsum,“ sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, sem skoraði þriðja mark Breiðabliks í kvöld af vítapunktinum.
Bæði skoraði hún úr víti sem Breiðablik var dæmt um miðjan seinni hálfleik og átti frábæra aukaspyrnu í uppbótartíma sem var ekki langt frá því að leka inn. Aðspurð um hvort von væri á meiru slíku í sumar sagði hún: „ Ég vona það, vona að Steini fari að gefa mér tækifæri eftir þetta.“

„ Við ætluðum að spila okkar leik, sækja svolítið hratt á þær. Þær eru mikið með boltann, það er þeirra leikur svo við vissum þetta yrði svona leikur,“ sagði hún um það að Stjarnan var mun meira með boltann í leiknum og sótti stýft án þess að ná að skapa sér mörg hættuleg færi.

Breiðablik á sinn fyrsta leik í Pepsi deildinni á fimmtudaginn og taka þá á móti FH.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.