Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 21. apríl 2021 07:00
Victor Pálsson
Bruno: Pogba einn besti leikmaður heims
Mynd: Getty Images
Paul Pogba er einn af bestu leikmönnum heims að sögn Bruno Fernandes, liðsfélaga hans hjá Manchester United.

Fernandes og Pogba mynda gott teymi á miðju Man Utd en sá fyrrnefndi kom í byrjun árs 2020.

Portúgalinn elskar að spila með Pogba hjá enska félaginu og telur hann gera sig að betri leikmanni.

„Ég tel að þegar þú spilar með þeim bestu þá nærð þú að sýna þitt besta. Þegar ég spila með Paul þá spila ég með einum besta leikmanni heims," sagði Fernandes.

„Ég held að ég nái því að spila minn besta leik og hann hefur hjálpað mér."

„Hann er mjög fyndinn náungi og hefur alltaf eitthvað til að segja sem fær fólk til að hlæja."
Athugasemdir
banner
banner