Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. maí 2020 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Piszczek framlengir við Dortmund (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund er búið að staðfesta að pólski bakvörðurinn Lukasz Piszczek er búinn að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár.

Piszczek verður því hjá Dortmund til næsta sumars en samningur hans hefði runnið út eftir rétt rúman mánuð.

Piszczek verður 35 ára í júní og hefur spilað 355 leiki á tíu árum hjá Dortmund. Auk þess á hann 66 landsleiki að baki fyrir Pólland.

Bakvörðurinn er búinn að spila síðustu sjö leiki Dortmund í öllum keppnum. Hann er búinn að spila 21 deildarleik á tímabilinu og skora eitt mark.


Athugasemdir
banner
banner
banner