21.05.21 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía um helgina - Framtíð Ronaldo hjá Juventus skýrist

Cristiano Ronaldo ætlar ekki að spila í Evrópudeildinni

Mynd: Getty Images

Lokaumferðin í Seríu A fer fram um helgina og þá skýrast málin með Meistaradeildarbaráttuna.
Inter og Atalanta eru búin að tryggja sæti sín í Meistaradeildina en tvö sæti eru laus og eru þrjú lið að berjast um þau.
Juventus er í fimmta sæti sem stendur, stigi á eftir Napoli og Milan en Juve mættir Bologna klukkan 18:45 á morgun. Milan á erfiðan leik fyrir höndum gegn Atalanta í Bergamó á meðan Napoli spilar við Verona.
Ef Juventus mistekst að komast í Meistaradeildina er það morgunljóst að Cristiano Ronaldo verður ekki áfram hjá félaginu en portúgalski snillingurinn sættir sig ekki við að spila í Evrópudeildinni á fimmtudögum.
Ronaldo er markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar frá upphafi með 134 mörk, fjórtán mörkum á undan Lionel Messi og keppnismaðurinn sem Ronaldo er myndi ekki sætta sig við að missa af einu tímabili í bestu deild heimsins.
Föstudagur:
18:45 Crotone - Fiorentina
18:45 Cagliari - Genoa
18:45 Sampdoria - Parma
Laugardagur:
13:00 Inter - Udinese
18:45 Napoli - Verona
18:45 Spezia - Roma
18:45 Atalanta - Milan
18:45 Sassuolo - Lazio
18:45 Bologna - Juventus
18:45 Torino - Benevento