Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. maí 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Júlíana Sveinsdóttir fótbrotnaði gegn Breiðabliki
Júlíana
Júlíana
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Júlíana Sveinsdóttir, leikmaður ÍBV, er fótbrotin og líkur eru á því að hún verði ekki meira með á tímabilinu. Júlíana fór meidd af velli snemma leiks gegn Breiðabliki í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar og kom í ljós að um fótbrot væri að ræða.

Tveir leikmenn ÍBV fengu einnig vægan heilahristing í leiknum. Þá fékk Olga Sevcova að líta rauða spjaldið og því mikið um skakkafölll í leiknum gegn Breiðablik.

„Þetta er utan á ristinni hjá Júlíönu, álagsbrot, hún hefur brotnað áður. Þetta eru 4-6 vikur í gifsi og líkur á því að tímabilið sé búið hjá henni," sagði Andri Ólafsson, þjálfari ÍBV, við Fótbolta.net í dag.

„Þetta voru dýr þrjú stig gegn Breiðabliki en góð. Þær sem fengu heilahristingana hafa fengið grænt frá sjúkraþjálfara og eru byrjaðar aftur en við förum varlega með þær."

Liana Hinds lék ekki með gegn Val á miðvikudag.

„Liana er tognuð og verður frá í einhvern tíma," sagði Andri.

ÍBV lá gegn Val, 4-2, á miðvikudag. Næsti leikur ÍBV er gegn Keflavík á fimmtudaginn.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner