Fotbolti.net
21.06.26 - 21:44
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Úrúgvæ og Grænhöfðaeyja: Nunez settur á bekkinn

Öll augu verða á Vozinha sem átti stórkostlega frammistöðu gegn Spánverjum

Öll augu verða á Vozinha sem átti stórkostlega frammistöðu gegn Spánverjum

Canon

Mynd: EPA

Grænhöfðaeyjar og Úrúgvæ mætast í annarri umferð í H-riðli á Hard Rock-leikvanginum í Miami klukkan 22:00 í kvöld. Leikurinn er í beinni textalýsingu á Fótbolti.net
Marcelo Bielsa, þjálfari úrúgvæska landsliðsins, gerir tvær breytingar frá 1-1 jafnteflinu gegn Sádi-Arabíu.

Darwin Nunez kemur á bekkinn eftir ömurlega frammistöðu í síðasta leik og þá dettur Matias Vina einnig út. Juan Sanabria og Augustin Canobbio inn.

Þrjár breytingar eru hjá Grænhöfðaeyjum. Benchimol, Garry Rodrigues og Telmo Arcanjo koma allir inn í liðið í stað Laros Duarte, Jovane Cabral og Dailon Livramento.

Báðar þjóðir eru með eitt stig.

Grænhöfðaeyjar: Vozinha; Moreira, Lopes, Borges, Sidny Cabral; Ryan Mendes, Kevin Pina, Arcanjo, Monteiro, Garry Rodrigues; Gilson Benchimol.

Úrúgvæ: Muslera; Varela, Cáceres, Olivera, Sanabria; Valverde, Bentancur, Ugarte; Canobbio, Fede Vinas, Maxi Araújo.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.