Fotbolti.net
21.06.26 - 21:40
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Jói Kalli svekktur: Var þeirra eina skot í leiknum og þeir ná að jafna leikinn

Auglýsing
Jói Kalli svekktur: Var þeirra eina skot í leiknum og þeir ná að jafna leikinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svekktur, Þórsararnir skoruðu úr þessu víti sem við færðum upp í hendurnar á þeim, bæði með innkastinu og náum svo ekki að koma boltanum úr teignum. Að eitthverju leyti þá brjótum við af okkur þarna og gefum þeim þetta víti sem var þeirra eina skot í leiknum og þeir ná að jafna leikinn" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH eftir 1-1 jafntefli gegn Þór á heimavelli.

Lestu um leikinn: FH 1 - 1 Þór

Jói Kalli er svekktur að FH hafi ekki nýtt sér stöðurnar sem þeir fengu betur.

„Frammistaðan í fyrri hálfleiknum var mjög flott og mér fannst við dómínera leikinn og spila fínan fótbolta. Við hefðum átt að nýta stöðurnar okkar betur og komast í tvö núll og auka forystuna í fyrri hálfleik. Við fengum líka tækifæri til þess að auka forystuna í seinni hálfleik, en því miður þá náðum við ekki að gera það. Við hefðum líka geta haldið forystunni í eitt núll og varið markið okkar betur. Ekki hleypa þeim í þessa vítaspyrnu, það er klaufagangur og ég er svekktur með það miðað við hvað strákarnir lögðu í þennan leik að við skildum ekki fá þessi þrjú stig hérna í dag."

Átti FH skilið öll þrjú stigin í dag?

„Já algjörlega. Þórsararnir komu hérna til þess að verjast á móti okkur og það var þeirra leikplan. Þeir stíga aðeins hærra á okkur í seinni hálfleik. En sköpuðu sér engin ákjósanleg marktækifæri, ekki það sem ég man eftir. Þannig að mér fannst við eiga miklu meira skilið úr þessum leik og það er svekkjandi að leikurinn hafi endað í jafntefli miðað við vinnusemina, spilið og sóknarleikinn á köflum í leiknum. Við sköpuðum okkur það mikið af stöðum að við hefðum átt alltaf geta klárað þennan leik."

Jói Kalli var ekki sáttur með hversu grimmir Þórsarar voru.

„Mér fannst að eitthverju leyti Þórsararnir vera heppnir að fá að spila þennan leik með ellefu leikmenn. Það voru einhver móment þarna þar sem hefði getað verið annað gult og rautt. Það hefði auðvitað verið þægilegra fyrir okkur. En þeir voru grimmir og komust upp með það að brjóta svolítið grimmt á okkur, það er bara eins og leikurinn þróaðist en sama skapi gerðum við nóg til þess að vinna leikinn."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.