Fotbolti.net
21.06.26 - 21:14
Brynjar Ingi Erluson

HM: Markvörðurinn hetjan í markalausu jafntefli gegn Belgum

Alireza Beiranvand átti líklega bestu vörslu mótsins

Alireza Beiranvand átti líklega bestu vörslu mótsins

Canon

Mynd: EPA

Belgía 0 - 0 Íran
Rautt spjald: Nathan Ngoy, Belgía ('66)
Belgía og Íran gerðu markalaust jafntefli í annarri umferð G-riðils heimsmeistaramótsins á Los Angeles Stadium í kvöld. Mark var dæmt af Írönum í fyrri hálfleik og Belgar spiluðu manni færri frá 68. mínútu.

Markverðirnir hafa verið áberandi á þessu móti og Alireza Beiranvand vildi greinilega slást í hópinn með þeim sem hafa heillað hvað mest á milli stanganna.

Hann byrjaði leikinn vel og átti nokkrar fínar vörslur áður en Íranar komu boltanum í netið eftir frábærlega útfærða aukaspyrnu. Mehdi Taremi hélt að hann hefði komið Íran yfir en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Belgar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en það vantaði herslumuninn á síðasta þriðjungnum og þeim gekk illa að brjóta Írana niður.

Leandro Trossard kom sterkur inn í síðari hálfleik og skallaði yfir áður en Thibaut Courtois varði vel frá Taremi hinum megin á vellinum. Það var þó ekki oft sem Courtois þurfti að taka á honum í leiknum.

Þegar um hálftími var eftir átti Beiranvand líklega markvörslu mótsins til þessa. Kevin De Bruyne fékk boltann við endamörkin, keyrði upp að markinu og kom boltanum í gegnum klofið á varnarmanni Írans og út í teiginn.

Maxim De Cuyper var kominn í dauðafæri en Beiranvand náði á einhvern ótrúlegan hátt að teygja út höndina og verja. Úlnliðurinn var stálharður og varslan í algjörum heimsklassa.

Sjö mínútum síðar urðu vonbrigði Belga enn meiri þegar Nathan Ngoy gerði hræðileg mistök. Hann fékk sendingu á miðsvæðinu og ætlaði að skila boltanum aftur á Courtois en hitti hann illa.

Taremi stakk sér fram fyrir hann og var við það að sleppa einn í gegn. Í stað þess að reyna að elta hann uppi ákvað Ngoy að rífa framherjann niður og fékk réttilega að líta rauða spjaldið.

Skelfilegt augnablik hjá Ngoy sem verður í leikbanni í lokaumferð riðlakeppninnar.

Belgar reyndu að sækja sigurinn þrátt fyrir að vera manni færri en voru jafn ósannfærandi og áður. Beiranvand þurfti aftur að verja og Dodi Lukebakio átti laglegt skot sem fór rétt framhjá.

Markið kom hins vegar ekki og niðurstaðan varð markalaust jafntefli. Belgar eru enn án sigurs, rétt eins og Íranar, sem voru líklega aðeins sáttari með stigið.

Bæði lið eru með tvö stig fyrir lokaumferðina. Belgía mætir Nýja-Sjálandi en Íran leikur gegn Egyptalandi.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Nathan Ngoy sá rautt hjá Belgum

Nathan Ngoy sá rautt hjá Belgum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.