Besta markvarsla mótsins til þessa? - „Á ekki til eitt einasta aukatekið orð“

Alireza Beiranvand átti sturlaða vörslu

Mynd: EPA

Alireza Beiranvand átti sturlaða vörslu

Mynd: EPA
Alireza Beiranvand, markvörður Írans, átti líklega markvörslu heimsmeistaramótsins til þessa er hann varði glæsilega frá Maxim De Cuyper í síðari hálfleiknum.
Kevin de Bruyne fékk boltann inn á teignum, hann var alveg upp við endamörk, kom honum fyrir. Boltinn fór af varnarmanni og út í teiginn á De Cuyper sem var kominn í dauðafæri, en Beiravand setti langa hönd sína út og varði.
„Hann bjargar ótrúlega. Þvílík björgun og þvílík markvarsla. Er þetta markvarsla mótsins? Ég segi já. Löng hönd Beiranvand kom í veg fyrir það. Ég á ekki til eitt einasta aukatekið orð,“ sagði Hörður í lýsingu RÚV.
„Vá, ég get svarið það. Markvarsla mótsins hingað, Ólafur, það er engum blöðum um það að fletta,“ sagði hann enn fremur.
Sjáðu vörsluna hér

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!