Sjáðu rauða spjaldið: Algjör martröð hjá miðverðinum

Nathan Ngoy var rekinn af velli

Mynd: EPA

Nathan Ngoy var rekinn af velli

Mynd: EPA
Nathan Ngoy, varnarmaður Belgíu, er ekki að fara heimsmeistaramótið vel af stað, en hann var rétt í þessu að fá rauða spjaldið gegn Íran.
Ngoy, liðsfélagi Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille, átti erfitt uppdráttar í fyrsta leiknum gegn Egyptum og það vantaði aðeins upp á einbeitinguna hjá honum.
Hann gerði svo afdrifarík mistök gegn Írönum í síðari hálfleiknum í dag þegar hann fékk boltann á miðsvæðinu og átti skelfilega sendingu til baka.
Mehdi Taremi elti boltann og Ngoy ákvað að rífa hann niður í stað þess að elta hann uppi. Hann fékk réttilega að líta rauða spjaldið og Belgar urðu manni færri.
Ngoy verður í leikbanni þegar Belgía mætir Nýja-Sjálandi í lokaumferðinni.
Sjáðu rauða spjaldið hér

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!