Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. maí 2021 14:49
Elvar Geir Magnússon
Skalli Alisson í öðru sæti yfir bestu stundir tímabilsins
Magnaður skalli Alisson.
Magnaður skalli Alisson.
Mynd: EPA
Dramatískt skallasigurmark Alisson, markvarðar Liverpool, á örlagastundu gegn West Bromwich Albion hefur verið rætt á kaffistofum um allan heim.

Á lista Mirror nær þetta augnablik aðeins í annað sætið yfir bestu stundir tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Í efsta sætinu er endurkoma áhorfenda á leiki.

„Tómir vellir hafa einkennt ensku úrvalsdeildina undanfarið ár og endurkoma stuðningsmanna í þessari viku hefur verið mögnuð. Stuðningsmenn koma með ástríðuna í leikinn og það er ekki hægt að gera almennilegar eftirlíkingar. Fótbolti er ekkert án stuðningsmanna," segir í umsögn Mirror.

Í þriðja sætinu yfir bestu stundir tímabilsins eru mótmæli stuðningsmanna sem slaufuðu Ofurdeildinni en listann má sjá hér í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner