Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 21. maí 2022 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Abraham bætti sextíu ára gamalt met
Mynd: Getty Images
Enski framherjinn Tammy Abraham skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Roma á Torino í ítölsku deildinni í gær. Með sigrinum gulltryggði liðið sér þátttökurétt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Þessi fyrrum framherji Chelsea skoraði 17 mörk í deildinni fyrir Roma en það er met hjá enskum leikmanni í ítölsku deildinni. Hann bætti met Gerry Hitchens sem skoraði 16 mörk fyrir Inter tímabilið 1961-62.

„Þetta hefur verið gott ár fyrir mig. Vonandi næ ég að byggja ofan á það á næsta ári og vonandi náum við í bikar þá verður þetta fullkomið ár," sagði Abraham.

Abraham gekk til liðs við Roma síðasta sumar fyrir 34 milljónir punda frá Chelsea.

Roma leikur til úrslita í sambandsdeildinni á miðvikudaginn þegar liðið mætir Feyenoord.


Athugasemdir
banner
banner