Fotbolti.net
21.05.26 - 15:39
Elvar Geir Magnússon

Aðeins einn í HM hóp Grænhöfðaeyja spilar í topp fimm

Logan Costa (til vinstri).

Logan Costa (til vinstri).

Canon

Mynd: EPA

Logan Costa, miðvörður spænska liðsins Villarreal, er eini leikmaðurinn í landsliðshóp Grænhöfðaeyja sem spilar í einni af fimm sterkustu deildum Evrópu.

Grænhöfðaeyjar eru að taka þátt í HM í fyrsta sinn og eru með reynslulítinn leikmannahóp.
Kraftröðunin fyrir HM: Tóku metið af okkur Íslendingum
TENGT EFNI

Kraftröðunin fyrir HM: Tóku metið af okkur Íslendingum

Fyrirliði Grænhöfðaeyja, Ryan Mendes sem spilar í Tyrklandi, mun leiða sóknarleik liðsins sextán árum eftir að hann lék sinn fyrsta landsleik.

Þá er Roberto Lopes, Pico, í hópnum en hann fæddist á Írlandi og leikur fyrir Shamrock Rovers.

Grænhöfðaeyjar eru með Spáni, Úrúgvæ og Sádi-Arabíu í riðli.

HM hópur Grænhöfðeyja:

Markverðir: Vozinha (Chaves), Marcio Rosa (Montana), CJ dos Santos (San Diego).

Varnarmenn: Stopira (Torreense), Roberto Lopes (Shamrock Rovers), Joao Paulo (FCSB), Diney (Al Bataeh), Logan Costa (Villarreal), Steven Moreira (Columbus Crew), Wagner Pina (Trabzonspor), Sidny Lopes Cabral (Benfica), Kelvin Pires (SJK).

Miðjumenn: Jamiro Monteiro (PEC Zwolle), Kevin Pina (Krasnodar), Deroy Duarte (Ludogorets), Telmo Arcanjo (Vitoria Guimaraes), Laros Duarte (Puskas Akademia), Yannick Semedo (Farense).

Sóknarmenn: Ryan Mendes (Igdir), Garry Rodrigues (Apollon Limassol), Willy Semedo (Omonia), Jovane Cabral (Estrela Amadora), Gilson Tavares (Akron Tolyatti), Dailon Livramento (Casa Pia), Helio Varela (Maccabi Tel Aviv), Nuno da Costa (Istanbul Basaksehir).
Aðeins einn í HM hóp Grænhöfðaeyja spilar í topp fimm
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.