Fotbolti.net
21.06.20 - 19:39
Arnar Laufdal Arnarsson

Rúnar Páll: Rauschenberg er ekki að fara neitt

Auglýsing
Sáttur með sína menn í dag.

Sáttur með sína menn í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Frábær frammistaða, erfitt að koma hérna í Grafarvog, þannig við gerðum bara feiki vel, skoruðum frábær mörk og vorum skipulagðir og bara frábær sigur," sagði Rúnar Páll Sigmundson, þjálfari Stjörnunnar, eftir frábæran 1-4 sigur gegn Fjölni í dag.

Martin Rauschenberg var ekki í hóp í dag, er hann á förum eða hver er staðan á honum?

„Hann er bara einn af 25 manna leikmannahóp og hann komst ekki í hóp núna það eru 18 sem komast í hóp og 7 utan hóps, 11 sem byrja inn á og 7 á bekknum og hann er bara fyrir utan hóp, hann er ekkert á förum héðan."
Hvað fannst Rúnari gerast í seinni hálfleik?

„Við bara tókum yfir og létum boltann vinna vel og vorum að fá frábærar sóknir sem voru vel útfærðar og bara þolinmæði, það var þolinmæðin sem fleytti okkur áfram í dag og það var hrikalega öflugt fyrir okkur."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.