Marcelo Bielsa verður næsti stjóri Athletic Bilbao ef Inaki Arechabaleta verður kosinn nýr forseti félagsins.
Arechabaleta er búinn að lofa því að ráða Bielsa ef hann verður kjörinn forseti félagsins.
Bielsa er elskaður í Bilbao. Hann stýrði liðinu frá 2011 til 2013 með virkilega flottum árangri og kom hann liðinu meðal annars í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á þeim tíma.
Bielsa var rekinn frá Leeds United fyrr á þessu ári og er núna atvinnulaus. Hann er byrjaður að undirbúa sig fyrir starfið hjá Athletic Bilbao og er búinn að horfa á 90 leiki frá síðustu leiktíð, bæði hjá aðalliðinu og akademíunni.
Bielsa er þekktur fyrir það að vera heltekinn af leiknum fallega og spila liðin hans oft bráðskemmtilegan fótbolta sem er virkilega gaman að horfa á.
𝐂𝐎𝐍𝐅𝐈𝐑𝐌𝐄𝐃: A smiling Marcelo Bielsa confirmed in a video today that he will return to Athletic if Iñaki Arechabaleta wins Friday's club elections.
— Newell's Old Boys - English (@Newells_en) June 20, 2022
El Loco said he had already watched 90 of the Basque club's matches from last season, including first-team & academy games. pic.twitter.com/aZ9ZfrSUrY
Athugasemdir