Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 21. júní 2023 10:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Magnús Haukur spáir í 9. umferð Bestu deildar kvenna
Magnús Haukur Harðarson.
Magnús Haukur Harðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mackenzie George.
Mackenzie George.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Hvað gera Þróttur og Keflavík í kvöld.
Hvað gera Þróttur og Keflavík í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Guðmunda Brynja Óladóttir, sóknarmaður HK, var með tvo rétta þegar hún spáði í síðustu umferð Bestu deildar kvenna.

Níunda umferð deildarinnar verður leikin í heild sinni í kvöld. Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, tók að sér það verkefni að spá í leiki kvöldsins.

FH 4 - 0 ÍBV (17:30 í dag)
Eftir ósanngjarnt tap gegn Blikum eru hetjurnar með svart hvítu hjörtun í frábæru formi. Skora tvö og Aldís lokar markinu hefur verið formúlan hjá Eiríkssonum en á sama tíma hafa Eyjakonur fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum og aðeins skorað eitt mark. Todor hefur verið með séræfingar fyrir framan markið í vikunni en það skilar sér ekki í þessum leik þar sem minn uppáhaldsleikmaður, Elísa Lana, skorar tvö og líklega besti leikmaður deildarinnar, Mackenzie George, setur hin tvö í öruggum 4-0 sigri í Kaplakrika.

Selfoss 2 - 3 Stjarnan (18:00 í dag)
Bjössi þarf að komast á Kótilettuna með liðið í algjöra Stuðlabands stemmingu en síðasti sigur kom 16 maí. Stjörnuliðinu vantar stöðugleika og hafa margir velt fyrir sér hvað sé gangi kvennameginn hjá Stjörnunni. Sú besta úr 112 Jasmín Erla verður stórkostleg í þessum leik skorar tvö og leggur upp eitt í hinu liðinu er það Sigríður Theódóra sem skorar og leggur upp á Emilíu en því miður dugar það ekki til og Kristján Guðmunds fer syngjandi yfir heiðina með þrjú stig í skottinu.

Keflavík 0 - 3 Valur (19:15 í kvöld)
Linli Tu, Linli Tu, Linli Tu, að stóru liðinn hafi ekki tekið þennan leikmann er ótrúlegt en því miður fyrir hana er Arna Sif í vörninni hjá Val og eins og með alla leikmenn í þessari deild enda þær í vasanum hennar. Vélin á Hlíðarenda er farin að malla og Pétur notar bekkinn vel í þessum leik þar sem Kolbrá Una skorar síðasta mark leiksins í 0-3 sigri. Arna Sif með hin tvö eftir hornspyrnur.

Þór/KA 0 - 0 Tindastóll (19:15 í kvöld)
Hér verður ekki talað um ferskleika hvorki inn á vellinum eða í viðtölum þjálfara eftir leik. Bæði lið klúðra hornspyrnum sínum í þessu leik og þess vegna fer þetta 0-0.

Breiðablik 3 - 3? Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Leikur sem á skilið 1000+ áhorfendur en þessi orrusta verður rosaleg. Það mun reyna á hóp Þróttar í þessum leik en bæði meiðsli og leikbann setja Nik í þá stöðu að aðrir leikmenn þurfa að fara stíga upp. Hjá Blikum hafa síðustu leikir farið vel og er komið sjálfstraust í hópinn. Þessi leikur mun gefa stuðningsmönnum liðanna alvöru rússíbanaferð en Birta Georgs skorar fyrstu tvö mörk leiksins en Olla minnkar muninn á 43 mínútu. Eldræða rave meistarans Nik Chamberlain skilar inn tveimur mörkum á fyrstu tuttugu í seinni en Ásta Eir jafnar leikinn þegar lítið er eftir. Þróttarar fá svo vítaspyrnu á 93. mínútu en þú þarft að mæta á völlinn til að sjá hvort þær skori eða ekki.

Fyrri spámenn:
Perry Maclachlan (4 réttir)
Selma Dögg Björgvinsdóttir (3 réttir)
Guðmunda Brynja Óladóttir (2 réttir)
Kristín Dís Árnadóttir (2 réttir)
Sandra Sigurðardóttir (2 réttir)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (1 réttur)
Óskar Smári Haraldsson (1 réttur)
Hrafnkell Freyr Ágústsson (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá hvernig stigataflan í deildinni lítur út.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner