Fotbolti.net
21.06.23 - 23:11
Haraldur Ingi Ólafsson Morthens

Óskar Smári: Stelpurnar lögðu ótrúlega mikla vinnu í þetta

Auglýsing
Óskar Smári: Stelpurnar lögðu ótrúlega mikla vinnu í þetta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Þetta er ótrúlega góð tilfinning. Það var svo mikil orka og vinna sem fór í þennan leik hjá stelpunum. Við áttum þennan sigur skilinn svo innilega,“ sagði glaðbeittur Óskar Smári Haraldsson eftir 2-1 sigur Fram á Aftureldingu í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. 

Með sigrinum í Úlfarsárdalnum í kvöld komust Fram-stúlkur upp fyrir KR og úr fallsæti en liðið situr í 8. sæti með sjö stig eftir átta leiki.

Fram-liðið setti tóninn strax frá byrjun og mætti gestunum úr Mosfellsbæ ofarlega á vellinum.

„Við viljum bara spila okkar fótbolta. Við viljum spila á ákveðinn hátt. Vid byrjuðum frá fyrstu mínútu í þessum leik. Við höfum ekkert verið að byrja alltaf leiki rosalega vel þótt við höfum komist yfir hér og þar. Við höfum bara verið að byrja frekar illa,“ sagði Óskar Smári.

„Við settum tóninn strax og stelpurnar lögðu ótrúlega mikla vinnu í þetta. Þetta var ekki fallegur leikur, og ef ég á að vera heiðarlegur, þá var ógeðslega léleg dómgæsla í þessum leik á bæði lið. Þess vegna var ennþá sætara á að ná að klára þetta á þennan hátt. Að nýta þessa sénsa sem við fengum í seinni hálfleik og komast í 2-0,“ sagði Óskar.

„Vinnslan og baráttan og viljinn hjá stelpunum í þessum leik var til fyrirmyndar,“ sagði Óskar Smári enn fremur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.