Fotbolti.net
30.06.26 - 22:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Enginn skorað fleiri mörk en Mbappe í útsláttakeppni

Enginn skorað fleiri mörk en Mbappe í útsláttakeppni
Canon

Mynd: EPA

Frakkland er 1-0 yfir gegn Svíþjóð í 32-liða úrslitum á HM. Kylian Mbappe skoraði markið undir lok fyrri hálfleiksins.

Hann lék á Viktor Gyökeres í teignum í kjölfar hornspyrnu og skoraði með góðu skoti í fjærhornið.
Hann hefur skorað níu mörk í útsláttakeppni en enginn hefur skorað jafn mörg mörk eftir riðlakeppnina í sögu mótsins. Brasilíski framherjinn Ronaldo skoraði átta mörk á sínum tíma.

Þá er hann kominn með 17 mörk á heimsmeistaramóti og er kominn upp fyrir Miroslav Klose í 2. sæti yfir markahæstu leikmenn í sögu mótsins. Aðeins Lionel Messi, með 19 mörk, hefur skorað fleiri.

Sjáðu markið hér


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.